| Sf. Gutt

Philippe úr leik næstu vikurnar


Nú er það ljóst að Philippe Coutinho verður ekki tiltækur næstu vikurnar. Ökklameiðslin sem hann hlaut á móti Sunderland voru skoðuð og metin í dag og úrskurðurinn var sá að ökklinn er ekki brotinn en um slæma tognun er að ræða. 

Brasilíumaðurinn verður frá leik og keppni út árið og hann gæti orðið allt að sex vikur á meiðslalistanum. Þetta er auðvitað mjög bagalegt nú þegar stíf leikjadagskrá fer í hönd. Jafnvel var búist við að Philippe yrði lengur frá en þessi tími sem upp er gefinn er nógu langur. 

Philippe Coutinho kemur vonandi sem fyrst sem leiks en mestu skiptir að hann nái sér fullkomlega og spili eins og hann er búinn að gera það sem af er leiktíðar. 




  
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan