| Sf. Gutt

125 ár frá stofnun Liverpool Football Club!


Í dag eru 125 ár liðin frá því knattspyrnufélag sem fékk nafnið Liverpool Football Club var stofnað í ensku hafnarborginni Liverpool á vesturströnd Englands. Formlegur afmælisdagur er ekki í dag en þennan dag fyrir 125 árum var haldinn fundur sem markaði stofnun félagsins þó formlegur stofndagur teljist 3. júní.

Everton hafði leikið á Anfield Road frá árinu 1884. Forráðamönnum félagsins þótti leigan, sem þeir borguðu fyrir afnot af vellinum of há, og þann 12. mars 1892 var haldinn fundur um málið. Forsvarsmenn Everton neituðu að borga uppsetta leigu til vallareigandans og hættu þar með að leika á Anfield Road. Sem betur fer! 


Þann 15. mars var aftur haldinn fundur þar sem eigandi Anfield Road John Houlding ákvað, ásamt nokkrum öðrum stuðningsmönnum sínum, að stofna knattspyrnufélag til að leika á Anfield. Félagið sem John og samstarfsaðilar hans stofnuðu hlaut nafnið Liverpool Association Football Club. Fáir hafa unnið gagnlegri verk hvað knattspyrnu varðar. Sigursælasta knattspyrnulið í sögu enskrar knattspyrnu var fætt. 

Það var svo 3. júní 1892 sem knattspyrnufélagið Liverpool F.C. var skrásett hjá opinberum yfirvöldum. Þá mun verða haldið formlega upp á 125 ára afmæli félagsins og telst 3. júní stofndagur og því kannski aðalafmælisdagurinn. En fundurinn sem haldinn var 15. mars markaði stofnun félagsins og það má vel halda upp á daginn :)

Hér má fræðast um hvernig stofnun Liverpool Football Club bar til. 




TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan