| Sf. Gutt
Það mun ekki vera neinn hundur í mönnum varðandi tilvonandi félagaskipti Fabinho Tavarez. Al Ittihad frá Sádi Arabíu ætlar sér að fá Brasilíumanninn í sínar raðir. Eftir því sem talið er þá hefur félagið boðið Liverpool 40 milljónir sterlingspunda.
Fyrir viku eða svo var talið að félagaskiptin myndu verða staðfest hvern næsta dag en hingað til hefur ekki verið gengið frá þeim. Fyrir nokkrum dögum kom upp kvittur þess efnis að allt væri í uppnámi vegna þess að hundum sem fjölskylda Fabinho á yrði ekki hleypt inn í Sádi Arabíu. Þetta hefur verið borið til baka og það ætti ekki að vera hundur í neinum.
Ljóst er að það er hið versta mál að missa Fabinho frá Liverpool. En eins og með aðra þá leikmenn sem hafa tekið stefnuna til Sádi Arabíu lítur út fyrir að erfitt sé að hafna tilboðum félaga þaðan!
TIL BAKA
Enginn hundur í mönnum!

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Gleðilegt sumar! -
| HI
Aftur niður á við -
| Sf. Gutt
Diogo Jota meiddur -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins 28. maí 2024 -
| Sf. Gutt
Nýr talinn líklegur eftirmaður Jürgen Klopp! -
| Sf. Gutt
Mark númer 100! -
| Sf. Gutt
Markmiðið er að vinna alla leikina! -
| Sf. Gutt
Í rétta átt! -
| Sf. Gutt
Við erum vonsviknir! -
| HI
Úr leik í Evrópudeildinni
Fréttageymslan