| Sf. Gutt

Joe Gomez í landsliðið á nýjan leik



Joe Gomez var valinn í enska landsliðið á nýjan leik eftir nokkurt hlé fyrir komandi landsleiki. Hann er búinn að vera frábær á leiktíðinni val hans er gott dæmi um þegar menn uppskera vel eftir að hafa neitað að gefast upp.



Það hefur gengið á ýmsu á ferli Joe hjá Liverpool. Hann hefur oft átt í vandræðum með meiðsli. En á þessu tímabili hefur hann sloppið við meiðsli og leyst allar þær stöður sem hann hefur þurft að fara í með sóma. Joe er búinn að spila 41 leik hingað til á leiktíðinni. Mest hefur hann leikið 43 leiki en það var á keppnistímabilinu 2019/20


Joe var fyrst valinn í enska landsliðið í nóvember 2017. Síðan hefur hann spilað 11 landsleiki. Síðast lék hann með landsliðinu 2020. Hugsanlega töldu margir að landsliðsferillinn væri búinn að svo er ekki.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan