| Sf. Gutt
Virgil van Dijk segir að leikmenn Liverpool séu mjög vonsviknir yfir því að vera úr leik í Evrópudeildinni. Stefnt var á að vinna keppnina en svo verður því miður ekki! Sigur á Atalanta á Ítalíu dugði ekki.
,,Til að byrja með er rétt að hrósa Atalanta. Við fórum illa að ráði okkar í síðustu viku. Við vorum mjög slakir í þeim leik en þeir náðu fullkomnum leik. Þá var skaðinn skeður. Þeir verðskulda að fara áfram. Við erum vonsviknir yfir því að vera úr leik í keppninni því okkur langaði mikið til að vinna hana."
Næsta mál á dagskrá hjá Liverpool er að fara til London þar sem liðið mætir Fulham á morgun. Liverpool hefur ekki unnið tvo síðustu deildarleiki. Það er því mál til komið að koma sér á rétta braut því það er ennþá möguleiki á að vinna enska meistaratitilinn. Sigurinn á Ítalíu gefur vonandi eitthvað sjálfstraust.
TIL BAKA
Við erum vonsviknir!

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Í höfn! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Gleðilegt sumar! -
| HI
Aftur niður á við -
| Sf. Gutt
Diogo Jota meiddur -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins 28. maí 2024 -
| Sf. Gutt
Nýr talinn líklegur eftirmaður Jürgen Klopp! -
| Sf. Gutt
Mark númer 100! -
| Sf. Gutt
Markmiðið er að vinna alla leikina! -
| Sf. Gutt
Í rétta átt!
Fréttageymslan