| Mummi

Aðalfundur Liverpoolklúbbsins 28. maí 2024

Aðalfundur Liverpoolklúbbsins á Íslandi verður haldinn þriðjudaginn 28. maí 2024 kl. 20 í Minigarðinum í Skútuvogi.

Samkvæmt lögum klúbbsins er dagskrá fundarins þessi:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Stjórn leggur fram skýrslu fyrir yfirstandandi starfsár
3. Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga.
4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.
5. Lagabreytingar, löglega fram bornar.
6. Kosning formanns til tveggja ára.
7. Kosning þriggja stjórnarmanna til tveggja ára.
8. Kosning tveggja varamanna til eins árs.
9. Kosning endurskoðenda.
10. Ákvörðun um árgjald.
11. Önnur mál.


Framboð til stjórnar þarf að berast eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund, eða 14. maí. Framboð sendist í tölvupósti á netfangið [email protected].

Ef óskað er eftir lagabreytingum þá gildir þessi grein í lögum félagsins
3. kafli, 13. gr. Tillögur um breytingar á lögunum skulu hafa borist stjórn eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Framkomnar breytingartillögur skulu kynntar á www.liverpool.is a.m.k. 7 dögum fyrir aðalfund.

Vakin er athygli á lagabreytingum vegna umboða sem voru samþykktar á síðasta aðalfundi. 
3. kafli 10. gr. Atkvæðis- og tillögurétt hafa aðeins skuldlausir félagsmenn. Umboð skuli berast stjórn eigi síðar en viku fyrir aðalfund, vottuð af tveimur einstaklingum. Félagsmenn geta ekki farið með umboð fyrir fleiri en tvo félagsmenn auk hans sjálfs.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan