Michael Owen
"Auðvitað er mér mikils virði að skora þessa þrennu rétt eins og allar hinar. Alla dreymir um að leika í treyju Liverpool. Það er heiður að skora mark fyrir þá hvað þá að skora þrennu. Ég vissi að ég myndi smella í gang þó að ég vildi að það hefði gerst aðeins fyrr. Ég hef gengið í gegnum erfiðleikatímabil áður en 4 mörk í 7 úrvalsdeildarleikjum er ekki svo slæm tölfræði."
Owen lét utanaðkomandi pressu ekki hafa áhrif á sig: "Ég hlustaði á þá sem vildu mér vel en ekki á vitleysingana. Auðvitað er gaman að skora mörk en ég fór aldrei í neina sálarflækju útaf markaleysinu. Ef þú lest blöðin þá ertu besti leikmaður heims einn daginn en sá versti þann næsta."