Samningi rift
Abel Xavier er enn í vondum málum. Áfrýjun hans vegna kæru sökum ólögmætrar lyfjanotkunnar var vísað frá í desember. Nú hefur annað áfall dunið yfir Portúgalann. Hann var á mála hjá Middlesbrough en nú hefur félagið riftað samningi sínum við hann. Hann gerði samning til árs við Middlesbrough í ágúst á liðnu ári en nú er sá samningur sem sagt úr sögunni.
Abel stendur enn fast við fullyrðingu sína um að hann hafi aldrei notað ólögleg lyf. En staða hans er ekki öfundsverð. Hann er nú í átján mánaða keppnisbanni og að auki er hann nú samningslaus. En Abel segist ekki hættur baráttunni fyrir því að sanna sakleysi sitt. Tíminn einn leiðir í ljós hvort honum tekst að koma sér aftur á réttan kjöl.
-
| Sf. Gutt
Cody Gakpo meiddur -
| Sf. Gutt
Hvað gerist næst! -
| Sf. Gutt
Sætur sigur á San Siro! -
| Sf. Gutt
Dregið í FA bikarnum -
| Sf. Gutt
Mohamed skilinn eftir heima í Liverpool! -
| Sf. Gutt
Allt í uppnámi eftir hörð orð Mohamed Salah! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Ánægður með markið!

