| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Gott fyrir sjálfstraustið
Simon Mignolet segist vera vonsvikinn yfir tapinu gegn Real Madrid í gær. Hann er hinsvegar sáttur við eigin frammistöðu.
Belginn hefur verið gagnrýndur harðlega fyrir frammistöðu sína á þessari leiktíð og margir sparkspekingar hafa komið fram og sagt að hann sé ekki nægilega góður til þess að spila fyrir lið sem ætlar sér að vera í fremstu röð. Í gær sýndi hann hinsvegar að á góðum degi eru fáir betri milli stanganna en hann.
,,Ég er ánægður með mína frammistöðu, en það er ekki aðalatriðið. Úrslit leiksins skipta meginmáli og það var svekkjandi að ná ekki að halda hreinu."
,,Við vorum líklega að spila við besta sóknarliðið í boltanum í dag og við vissum að leikurinn yrði erfiður. Við reyndum að vera vel skipulagðir og verjast sóknum þeirra. Mér fannst við einbeittir og góðir varnarlega, þessvegna var mjög svekkjandi að við skyldum ekki ná að halda í stigið. En ég mun persónulega taka margt jákvætt úr þessum leik. Frammistaða mín var góð fyrir mitt sjálfstraust."
Á laugardag bíður Liverpool ekki síður erfitt verkefni, því þá mætir efsta lið Úrvalsdeildarinnar, Chelsea, á Anfield. Chelsea hefur haft nokkra yfirburði í deildinni það sem af er tímabilinu og enn hefur engu liði tekist að leggja þá bláklæddu að velli. Mignolet segir þó að dagskipunin sé einföld. Liverpool muni leika til sigurs.
,,Við erum Liverpool FC og á heimavelli munum við alltaf leika til sigurs, alveg sama hver andstæðingurinn er. Við munum undirbúa okkur vel og mæta óhræddir til leiks. Vonandi náum við öllum stigunum."

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Hlýrra uppi í stúku! -
| Sf. Gutt
Dregið í Deildarbikarnum -
| Sf. Gutt
Áfram í Deildarbikarnum -
| Mummi
Miðasala á Liverpool – Ipswich og Liverpool – West Ham -
| Mummi
Seinkun á jólagjöf -
| Sf. Gutt
Af samningamálum Trent Alexander-Arnold -
| Sf. Gutt
Jafntefli manni færri! -
| Sf. Gutt
Enn nær Mohamed Salah merkum áfanga! -
| Sf. Gutt
Sögulegur sigur! -
| Sf. Gutt
Sigur á Spáni
Fréttageymslan