| Sf. Gutt
Varnarmaðurinn ungi Jon Flanagan verður áfram hjá Liverpool. Hann hefur fengið nýjan langtímasamning við félagið og fer því ekki fet.
Jon var stórgóður á leiktíðinni 2013/14 þegar Liverpool hafnaði í öðru sæti i deildinni en meiddist á undirbúningstímabilinu fyrir síðasta keppnistímabil og svo fór að hann spilaði ekki einn einasta leik á því. Það var reyndar ekki fyrr en í janúar á þessu ári sem Jon var búinn að ná sér og lék að nýju með aðalliðinu.
Nú er að sjá hvort Jon nær sér almennilega á strik eftir þessi erfiðu meiðsli. Vonandi gerir hann það því framganga hans fyrir meiðslin lofaði góðu og hann var meira að segja kominn í enska landsliðshópinn. Einhverjir töldu að nýr samningur myndi ekki vera gerður en Jürgen Klopp vildi hafa piltinn áfram hjá félaginu og svo verður.
Jon er fæddur rétt hjá Anfield og er því heimamaður eins og mest má vera. Hann er vinsæll hjá stuðningsmönnum Liverpool og því til marks má nefna mikinn fögnuð á Anfield þegar hann kom inn á sem varamaður í sínum fyrsta leik eftir meiðslin gegn Exeter í FA bikarnum fyrr á þessu ári.
TIL BAKA
Jon Flanagan verður áfram

Nýlegar fréttir
-
| Heimir Eyvindarson
Hvað sem hver segir -
| Sf. Gutt
Gríðarlega mikilvægur sigur! -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Hundraðasti sigur Liverpool á Everton! -
| Sf. Gutt
Í síðasta sinn í gegnum Stanley garðinn! -
| Heimir Eyvindarson
Hvernig leggst hvíldin í okkar menn -
| Sf. Gutt
Lokaspretturinn hefst annað kvöld! -
| Sf. Gutt
Skipt um gír í síðari hálfleik! -
| Sf. Gutt
Fyrsti apríl! -
| Sf. Gutt
Asíuferð í sumar
Fréttageymslan