| Heimir Eyvindarson

Allskonar til að gleðjast yfir

Liðið okkur hrökk í gang í uppbótartíma gegn Brentford á dögunum, eftir örlítið hikst þar á undan. Í kvöld fá 9 lykilmenn sjaldgæfa en kærkomna hvíld. Vonandi tekur það ekki taktinn úr mannskapnum. 

Annars er alveg á mörkunum að maður geti leyft sér að tala um hikst, jú jú jafntefli gegn United og Forest og tap gegn Tottenham en þeirri viðureign lýkur ekki fyrr en í næstu viku. Við erum þrátt fyrir þetta "hikst" með í öllum keppnum og á toppnum í Meistaradeildinni (a.m.k. eitthvað fram á kvöld) og Úrvalsdeildinni.

Það sem skiptir okkur alltaf mestu máli er enska deildin. Þar er staðan svona: 

 

Á laugardaginn mætum við spútnikliði Bournemouth á útivelli. Vonandi mætir liðið ferskt í þann leik, sem er nota bene 1. leikur af 7 í febrúar. Það er hressilegt prógramm. 

Það er varla að maður þori að segja það upphátt, en við höfum verið ótrúlega heppin með meiðsli það sem af er. Jota er auðvitað ansi mikið frá, en það er svosem ekkert nýtt. Vonandi róast Nunez aðeins við mörkin tvö gegn Brentford, það væri geggjað að fá hann loksins í gang. Myndi slá aðeins á Jota söknuðinn. Ég er reyndar líklega aðeins of bjartsýnn að leyfa mér að halda það, svo það sé nú sagt.

Annað ánægjuefni er innkoma Chiesa í síðustu leikjum. Vissulega eru mínúturnar ekki margar enn sem komið er, en það er samt gleðilegt að sjá að það er líf í Ítalanum. Hann er allavega raunhæfur kostur á bekknum, sem getur heldur betur reynst dýrmætt. Og fær að öllum líkindum stórt hlutverk gegn PSV í kvöld.

 

Það ræðst í kvöld hvort við endum í 1. eða 2. sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Það eitt og sér skiptir í sjálfu sér engu máli um framhaldið, en það væri óneitanlega skemmtilegt að enda riðlakeppnina á fullu húsi. Það færi í sögubækurnar. 

YNWA!

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan