Fyrsta tapið í Meistaradeildinni
Liverpool tapaði fyrir PSV Eindhoven í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Liverpool endar samt á toppi riðlakeppninnar.
Arne Slot gat leyft sér þann lúxus að skilja 9 leikmenn eftir heima í Liverpool, enda skiptu úrslit leiksins í raun engu máli. Byrjunarliðið var svona: Kelleher, Bradley, Quansah, Robertsson (F), Tsimikas, Endo, McConnell, Elliot, Chiesa, Gapko, Danns. Robertson í miðverðinum með Quansah.
Fyrri hálfleikurinn í kvöld er einhver sá undarlegasti sem maður hefur séð. Fyrstu 25 mínúturnar var ekkert að frétta, en síðan komu mörkin á færibandi.
Liverpool fékk víti á 26. mínútu þegar brotið var á Chiesa inní teig. Klaufalegt brot, en hverjum er ekki sama. Fyrrum PSV leikmaðurinn Cody Gapko fór á punktinn og skoraði af miklu öryggi.
Á 35. mínútu skoraði Johan Bakayoko glæsilegt mark fyrir PSV, sendi báða miðverðina okkar í grasið áður en hann klíndi boltanum í hliðarnetið. Vandræðalegur varnarleikur hjá Robertson og Quansah, staðan 1-1.
Fimm mínútum síðar var Liverpool komið yfir á nýjan leik. Harvey Elliot náði frákastinu eftir fast skot frá Chiesa og renndi boltanum í fjær. Frekar undarleg sókn samt, Endo lúðraði boltanum lengst upp í loft, en einhvern veginn tókst Gapko að vinna hann og búa til skotfæri fyrir Chiesa.
Ismael Saibari jafnaði fyrir PSV á 45. mínútu og mjög djúpt inní uppbótartíma kom Ricardo Pepi heimamönnum yfir. Staðan í hálfleik 3-2. Varnarleikur beggja liða hrein hörmung og fimm mörk niðurstaðan, úr fimm færum.
Í seinni hálfleik gerðist eiginlega ekkert markvert, nema það að Amaro Nallo sem kom inná fyrir Jayden Danns á 83. mínútu, fékk að líta rauða spjaldið á 87. mínútu. Nallo missti Bakayoko klaufalega framfyrir sig og braut á honum. Beint rautt. Fyrsti leikur Nallo í Liverpool treyjunni og hann vill líklega gleyma honum sem fyrst.
Leikurinn endaði 3-2. Liverpool vann riðilinn með 21 stig. Áfram gakk.
Lið Liverpool: Kelleher, Bradley, Quansah, Robertsson, Tsimikas, Endo, McConnell, Elliot, Chiesa, Gapko, Danns.
Ónotaðir varamenn: Jaros, Davies, Norris, Mabaya, Morrison, Kone-Doherty
Maður leiksins: Cody Gakpo spilaði bara fyrri hálfleikinn og var okkar besti maður. Chiesa var einna bestur heilt yfir, ánægjulegt að sjá hann klára 90 mínútur og hann sýndi á köflum að það er hellingur af gæðum í honum.
Vonbrigði: Það er kannski ekki sanngjarnt að dæma menn út frá frammistöðunni í þessum leik, en Quansah nýtti tækifærið ekki vel í kvöld. Verulegt áhyggjuefni hvað hann er linur. Elliot skoraði vissulega ágætt mark, en hann er aðeins of gjarn á að missa boltann frá sér í einhverju óþarfa brasi.
Á föstudaginn kemur í ljós hver næsti mótherji verður. Eins og ég skil þetta koma PSG, Benfica, Monaco og Brest til greina. Semsagt liðin í 15.-18. sæti, en þau eiga eftir að fara í umspil þannig að þetta kemur ekki endanlega í ljós fyrr en 18. eða 19. febrúar. Ef ég skil þetta rétt.
YNWA!
-
| Heimir Eyvindarson
Bajcetic til Las Palmas -
| Heimir Eyvindarson
Nallo sló 27 ára gamalt met Michael Owen -
| Heimir Eyvindarson
Allskonar til að gleðjast yfir -
| Sf. Gutt
Níu skildir eftir heima -
| Sf. Gutt
Enn nær Mohamed Salah merkum áfanga! -
| Sf. Gutt
Léttur sigur! -
| Sf. Gutt
Stórgóð byrjun! -
| Sf. Gutt
Tveir í viðbót á meiðslalistann -
| Sf. Gutt
Fimmtíu Evrópumörk! -
| Sf. Gutt
Áfram á sigurbraut!