| Sf. Gutt
Sami Hyypia er fyrsta fórnarlamb landsleikjahlésins en hann er kominn heim til Liverpool vegna meiðsla á hné. Sami átti mjög góðan leik þegar Finnar unnu góðan útisgur 2:0 í Wales á laugardaginn. Því miður meiddist hann í leiknum og forráðamenn finnska landsliðsins sendu hann til Liverpool svo hægt væri að fara að meðhöndla meiðslin. Sami fór í myndatöku í dag en ekki hefur verið gefið út hversu alvarleg meiðsli finnska höfðingjans eru.
Rafael Benítez heldur að meiðslin séu ekki alvarleg og hann var ánægður með að Finnar skyldu senda Sami strax til Liverpool.
"Sami er vondur í hnéi en meiðslin eru ekki talin alvarleg. Hann mun þó ekki æfa næstu dagana. Ég spjallaði við Sami í gær og hann sagði mér að hann myndi vera tilbúinn í næsta leik. Hann er nú þegar farinn að leggja hart að sér svo hann nái sér aftur. Það var gott hjá landsliði Finna að leyfa Sami að koma til okkar. Þetta var mjög skynsamleg ákvörðun hjá þeim og hann er núna að vinna með sjúkraþjálfurunum okkar."
Nú er að vona að Sami verði ekki lengi frá því það er alltaf gott að hafa finnska meistarann til taks. Hann sýndi á Old Trafford um daginn að það eru ekki margir miðverðir betri en hann.
TIL BAKA
Sami Hyypia kominn meiddur heim

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan