Til hamingju!

Fimmtugur er í dag Robert Bernard Fowler. Robbie er einn af mestu markaskorurum í sögu Liverpool. Þegar hann var upp á sitt besta stóðust fáir varnarmenn honum snúning og hann skoraði að vild að því manni virtist. Fáir leikmenn í seinni tíð hafa verið vinsælli hjá stuðningsmönnum Liverpool og er óhætt að segja að hann skipi sérstakan sess hjá þeim.

Robbie fæddist í Liverpool 9. apríl 1975. Hann æfði með yngri liðum Liverpool og þótti snemma hafa mikla hæfileika til að skora mörk. Hann komst í aðallið Liverpool haustið 1993 og upphóf strax mikla markaskorun. Hann skoraði í sínum fyrsta leik þegar Liverpool vann 1:3 útisigur á Fulham í Deildarbikarnum. Í seinni leik liðanna skoraði hann öll mörkin í 5:0 sigri!

Ekkert virtist geta stöðvað Robbie þar til hann varð fyrir hnjámeiðslum á leiktíðinni 1997/98. Hann skoraði vissulega mikið eftir það en meiðslin settu strik í reikninginn. Það óhugsandi gerðist í nóvember 2001 að Robbie var seldur til Leeds United. Hann lék síðar með Manchester City en í janúar 2006 fékk hann óvænt tækifæri til að koma aftur til Liverpool.
Robbie var auðvitað búinn með sitt besta en bætti leikjum og mörkum á afrekaskrá sína áður en hann yfirgaf Liverpool vorið 2007. Hann segir þessa óvæntu endurkomu hafa verið hápunktinn á ferli sínum. Robbie endaði ferilinn á Englandi með Cardiff City og Blackburn Rovers. Hann lék um tíma í Ástralíu með North Queensland Fury og Perth Glory. Síðast spilaði hann með Muangthong United í Tælandi.
Robbie hefur aðeins fengist við framkvæmdastjórn. Fyrst var hann hjá Muangthong United þar sem hann lauk knattspyrnuferli sínum. Næst stýrði hann Brisbane Roar í Ástralíu. Svo indverska liðinu East Bengal og loks Al-Qadsiah í Sádi-Arabíu.

Robbie lék alls 369 leiki með Liverpool, skoraði 183 mörk og lagði upp 49. Hann er sjöundi markahæsti leikmaður í sögu Liverpool. Robbie varð Deildarbikarmeistari 1995 og 2001. Hann vann svo F.A. bikarinn, Evrópukeppni félagsliða og Stórbikar Evrópu 2001. Hann lék 26 landsleiki fyrir England og skoraði sjö sinnum.

Robbie Fowler var gestur á árshátíð Liverpool klúbbsins árið 2014. Koma hans vakti mikla athygli og aðdáendur kappans hópuðust að honum hvar sem hann kom. Robbie er núna sendiherra Liverpool Football Club og kemur fram við ýmis tækifæri fyrir hönd félagsins. Hann hefur líka rekið knattspyrnuskóla í nokkur ár. Robbie hefur á seinni árum starfað sem sparkspekingur í sjónvarpi.

Liverpool klúbburinn á Íslandi óskar Robbie Fowler til hamingju með daginn!
-
| Mummi
Mikið fjör á árshátíð Liverpoolklúbbsins! -
| Sf. Gutt
Mohamed Salah gerir nýjan samning! -
| Sf. Gutt
Næsta víst! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Heimir Eyvindarson
Hvað sem hver segir -
| Sf. Gutt
Fyrsta deildartapið frá í haust! -
| Sf. Gutt
Gríðarlega mikilvægur sigur! -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Hundraðasti sigur Liverpool á Everton! -
| Sf. Gutt
Í síðasta sinn í gegnum Stanley garðinn!