| HI
Umboðsmaður Andrea Dossena hefur upplýst að Liverpool hafi samþykkt tilboð frá Napólí í leikmanninn. Þetta kemur fáum á óvart en Dossena átti erfitt uppdráttar á síðasta tímabili eftir að hafa verið keyptur til félagsins fyrir ári frá Udinese. Búist er við að gengið verði frá kaupunum síðar í vikunni, þegar Dossena hefur sjálfur samið við Napólí um kaup og kjör.
"Liverpool hefur samþykkt tilboð Napólí en ég get ekkert sagt meira," sagði umboðsmaðurinn við fjölmiðil sem heitir því skemmtilega nafni Radio Kiss Kiss. "Þetta er aðeins dagaspursmál núna. Frá sjónarhóli Andrea eru engin vandamál. Um leið og Napólí setur sig í samband við okkur klárum við málið."
TIL BAKA
Liverpool samþykkir tilboð í Dossena

"Liverpool hefur samþykkt tilboð Napólí en ég get ekkert sagt meira," sagði umboðsmaðurinn við fjölmiðil sem heitir því skemmtilega nafni Radio Kiss Kiss. "Þetta er aðeins dagaspursmál núna. Frá sjónarhóli Andrea eru engin vandamál. Um leið og Napólí setur sig í samband við okkur klárum við málið."
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan