| Grétar Magnússon
TIL BAKA
Kominn tími til að vera miskunnarlausir
Rafa Benítez segir að leikmenn sínir verði að vera miskunnarlausir fyrir framan mark andstæðinganna ef þeir ætli sér að skora mark gegn Stoke City í kvöld. Ekki tókst að koma boltanum í net Stoke manna á síðasta tímabili.
Benítez vill að leikmenn sínir bregðist við tapinu gegn Tottenham á sunnudaginn með viðeigandi hætti.
,,Þetta var aðeins fyrsti leikurinn á tímabilinu og það eru margir leikir eftir," sagði Benítez. ,,Við verðum að vera rólegir og vinna okkar vinnu."
,,Við vitum að leikurinn við Stoke verður erfiður, en við þurfum að skapa okkur færi og nýta þau. Svona leikir geta breyst með einu marktækifæri ef manni tekst að skora. Við vitum að við þurfum að spila betur og nú erum við á heimavelli þannig að stuðningsmenn okkar vita að þeir geta bætt okkar leik með því að hvetja okkur áfram."
,,Við viljum skapa okkur færi líkt og við gerðum á síðasta tímabili gegn Stoke og nú ætlum við að nýta þau. Að fá 20 marktækifæri í einum leik ætti að duga til að skora."

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan