| Grétar Magnússon
TIL BAKA
Ég skuldaði góða frammistöðu
Steven Gerrard segist hafa skuldað góða frammistöðu en hann var maður leiksins gegn Bolton á laugardaginn í 3-2 sigri. Rafa Benítez gagnrýndi Gerrard opinberlega eftir tapleikinn við Aston Villa.
Gerrard viðurkennir fúslega að hann hafi ekki spilað vel í fyrstu leikjum tímabilsins en hann kom sterkur inn í leikinn gegn Bolton og skoraði sigurmarkið sjö mínútum fyrir leikslok.
,,Ég hef ekki byrjað tímabilið vel," sagði Gerrard. ,,Ég viðurkenndi þetta inní búningsherbergi eftir leikinn við Villa og sagði að ég hefði ekki verið nógu góður. Ég veit hvenær ég hef ekki staðið mig vel og ég þurfti að taka mig saman í andlitinu eftir frammistöðuna á mánudaginn og ég held að mér hafi tekist það."
,,Það var mikil pressa á okkur að ná í þrjú stig. Frammistaðan þurfti að vera góð en í raun snerist þetta allt um úrslitin. Gagnrýnin sem við fáum á okkur kemur til vegna væntinganna. Við lentum í öðru sæti á síðasta tímabili og nú búast allir við því að við byrjum vel og komumst strax á toppinn."
,,Fólk var hinsvegar byrjað að afskrifa okkur eftir þrjá leiki og það er algjör vitleysa. Allir leikmennirnir vissu að leikurinn gegn Villa var lélegur og menn þurftu að bregðast við. Við settum pressu á okkur sjálfa. Við erum með alvöru leikmenn í þessu liði sem búast við því að vinna hvern einasta leik. Mér fannst hver og einn leikmaður standa upp og gera sitt til að landa þessum sigri sem var sanngjarn."
Nú tekur við tveggja vikna hlé vegna landsleikja og Gerrard segir að leikmennirnir séu tilbúnir að halda áfram á þessari braut þegar þeir koma til baka.
,,Ég held að leikmennirnir hafi verið kannski aðeins of stressaðir í leikjunum vegna þess að við byrjuðum ekki vel," sagði Gerrard. ,,En við áttum ekki fullkomið undirbúningstímabil. Nokkrir leikmenn komu seinna inní hópinn og við lentum í erfiðleikum með meiðsli. Ég er ekki að leita að afsökunum en það voru atriði sem trufluðu."
,,Við vissum því að byrjunin gæti orðið erfið á tímabili, við gætum orðið taugaspenntir og svo voru nokkrir ungir leikmenn að koma inní liðið. Við höfum hinsvegar öðlast mikið sjálfstraust með þessum sigri, nú róast allir og við getum komist á gott skrið."
,,Þeir leikir sem við gerðum jafntefli í á síðasta tímabili verðum við að vinna nú og svo verðum við að bæta fyrir þá leiki sem við höfum tapað nú þegar."
,,Ég held hinsvegar að deildin verði öðruvísi á þessu tímabili. Chelsea og Man Utd. unnu nánast alla leiki á síðasta tímabili en ég held að sú verði ekki raunin nú. Lið eins og Tottenham og Manchester City eru sterkari, það eru sjö eða átta lið sem geta tekið stig hvert af öðru."

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Hlýrra uppi í stúku! -
| Sf. Gutt
Dregið í Deildarbikarnum -
| Sf. Gutt
Áfram í Deildarbikarnum -
| Mummi
Miðasala á Liverpool – Ipswich og Liverpool – West Ham -
| Mummi
Seinkun á jólagjöf -
| Sf. Gutt
Af samningamálum Trent Alexander-Arnold -
| Sf. Gutt
Jafntefli manni færri! -
| Sf. Gutt
Enn nær Mohamed Salah merkum áfanga! -
| Sf. Gutt
Sögulegur sigur! -
| Sf. Gutt
Sigur á Spáni
Fréttageymslan