| Sf. Gutt
Hörmungin í F.A. bikarnum gegn Reanding skyggir aðeins á þá vinalegu staðreynd að Liverpool hefur ekki tapað í síðustu fjórum deildarleikjum. Þar af hefur Liverpool unnið þrjá leiki og staða liðsins, í baráttunni um fjórða sætið í deildinni, hefur lagast mikið síðasta mánuðinn. Í bili er ekki hægt að stefna á hærra sæti en það fjórða.
Slakt gengi liðsins á leiktíðinni fer nú vonandi að lagast. Sigurinn á Tottenham í síðustu viku lofar góðu. Liverpool hefur þó náð nokkrum góðum sigrum fyrr á leiktíðinni sem hafa lofað góðu en liðið hefur svo ekki náð að fylgja þeim sigrum eftir. Nú er lag! Sólin hækkar jú jafnt og þétt á lofti!
Fróðleiksmolar...
- Liverpool hefur nú leikið fjóra deildarleiki í röð án taps.
- Það er stutt á milli leikja þessara liða því þau léku fyrri deildarleik sinn á öðrum degi jóla eða fyrir réttum mánuði.
- Liverpool vann þann leik 2:0 og getur náð tvöföldum sigri í deildarleikjum í fyrsta sinn á keppnistímabilinu.
- Liverpool hefur ekki unnið á Molineux frá því hafísárið 1979. Síðan hafur Liverpool ekki náð sigri þar í fimm tilraunum.
- Þeir Jose Reina, Lucas Leiva og Dirk Kuyt hafa spilað alla deildarleiki Liverpool á þessari leiktíð.
- Fernando Torres hefur skorað flest mörk Liverpool á keppnistímabilinu eða tólf talsins.
Þó svo að Wolves hafi gert 2:2 jafntefli gegn Crystal Palace á laugardaginn þá má búast við að Mick McCarthy geri margar breytingar á liðinu sínu fyrir þennan deildarleik. Liverpool hefur ekki leikið í næstum því eina viku svo menn ættu að vera úthvíldir.
Liðið lék vel gegn Tottenham á Anfield. Ég held að liðið muni ekki skapa sér mörg færi í þessum útileik því þeir Fernando Torres og Yossi Benayoun eru ekki með. Þeir menn sem hann hefur skapa ekki mikið. Það skiptir miklu hvort Steven Gerrard verður leikfær og ég ætla að giska á jafntefli.
Úrskurður: Wolverhampton Wanderes v Liverpool 1:1.
TIL BAKA
Mark spáir í spilin

Spá Mark Lawrenson
Wolverhampton Wanderes v Liverpool

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan