| Sf. Gutt
Jack Robinson varð í gær yngsti leikmaðurinn í allri sögu Liverpool til að spila fyrir hönd félagsins! Hann var aðeins 16 ára og 250 daga gamall þegar hann kom inn á sem varamaður gegn Hull City.
Jack stórbætti gamla metið sem Max Thompson átti. Hann var 17 ára og 129 daga gamall þegar hann lék sinn fyrsta leik með Liverpool gegn Tottenham þann 8. maí 1974. Leiknum lauk með 1:1 jafntefli. Max lék aðeins einu sinni í viðbótar með Liverpool.
Það á eftir að koma í ljós hvort Jack, sem er fæddur 1. september 1993, á eftir að láta að sér kveða með Liverpool þegar fram líða stundir en það var sannarlega söguleg og skemmtileg stund þegar unglingurinn setti þetta nýja félagsmet.
Næsta víst er að þetta nýja met Jack Robinson á eftir að standa lengi því pilturinn er svo kornungur. Til að setja aldur hans í samhengi þá væri hann hér á Íslandi á fyrsta ári í framhaldsskóla og stæði nú í vorprófum. Svo væri rúmt ár í bílprófið! Sannarlega magnað!
TIL BAKA
Jack Robinson yngstur allra!

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan