| SSteinn
TIL BAKA
Fánadagur á Górillunni í dag
Í dag í tengslum við leik Liverpool og Norwich, sem fram fer á Anfield, verður fyrsti fánadagur Liverpoolklúbbsins á Íslandi haldinn hátíðlegur á nýjum heimavelli klúbbsins, Úrillu Górillunni sem staðsettur er uppi á Stórhöfða. Mikið og margt verður að gerast á fánadeginum og glæsileg verðlaun verða í boði. Meðal þess sem við ætlum að taka okkur fyrir hendur er:
- Verðlaunagetraun
- Flottasti Liverpool klæðnaðurinn
- Hin hefðbundni markaleikur
Nú er um að gera að dressa sig upp og mæta á svæðið í sínu fínasta Liverpool pússi, mæta tímanlega og taka þátt í að mynda frábæra stemmningu. Að sjálfsögðu verða sérkjör klúbbsins í boði á svæðinu, hvort sem um ræðir mat eða drykk. Dagskráin sem slík hefst klukkan 15:30 en leikurinn sjálfur hefst klukkan 16:30. Nú er kjörið tækifæri til að koma saman og eiga góðan dag saman og enda þetta svo með því að sjá okkar menn hala inn 3 stigum í deildinni.
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Áramótakveðjur! -
| Sf. Gutt
Verðum að skrifa okkar eigin sögu! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Jólahugleiðing Arne Slot -
| Sf. Gutt
Gleðileg jól! -
| Sf. Gutt
Af samningamálum Virgil van Dijk -
| Sf. Gutt
Úr leik! -
| Sf. Gutt
Hlýrra uppi í stúku! -
| Sf. Gutt
Dregið í Deildarbikarnum -
| Sf. Gutt
Áfram í Deildarbikarnum
Fréttageymslan