| Sf. Gutt
TIL BAKA
Frumraun Brendan Rodgers hjá Liverpool!
Einhver talaði einu sinni um lítið skref fyrir manninn. Leikur Liverpool gegn Gomel í forkeppni Evrópudeildarinnar flokkast ekki með markverðustu leikjum í sögu félagsins. En Brendan Rodgers telur sig samt taka stórt skref í Hvíta Rússlandi í kvöld. Hann stjórnar þá Liverpool sem framkvæmdastjóri í fyrsta skipti í opinberum leik og það er stór viðburður í lífi Norður Írans.
,,Kannski er þetta ekki einn af merkilegri leikjum í sögu félagsins en hann hefur geigvænlega mikla þýðingu fyrir mig sjálfan. Það skiptir öllu fyrir mig að stjórna liði í Evrópukeppni sem hefur farið sigurfarir um Evrópu í áraraðir."
,,Ég og leikmenn mínir munum ekki vera með neitt kæruleysi. Þetta verður auðvitað erfitt því í raun erum við ennþá á undirbúningstímabilinu og ég þarf að fara varlega í að velja leikmenn. Ég má ekki við því að missa lykilmenn í meiðsli því hópurinn er ekki svo stór."
Þetta er ekki bara fyrsti leikurinn á valdatíð Brendan Rodgers því hann sjálfur stýrir liði í Evrópukeppni í fyrsta skipti á ferli sínum.
,,Þetta er frábært því ég stjórna liði sem framkvæmdastjóri í Evrópuleik í fyrsta sinn. Ég hef auðvitað þjálfað yngri lið úti um allan heim og í sannleika sagt er ekki mikil munur á leikaðferðum. Munurinn er sá að í leik aðalliða er meiri pressa á öllu. En þetta verður frábært fyrir mig því allir framkvæmdastjórar verða að byrja einhvers staðar. Hingað til á framkvæmdastjóraferli mínum hef ég notið hverrar mínútu. Nú er næsta áskorun mín að taka þátt í Evrópukeppni og það er frábært að leiða lið eins Liverpool til leiks."
Brendan Rodgers stjórnar Liverpool í fyrsta sinn í kvöld og verður þar með átjándi maðurinn til að stjórna liðinu frá því það var stofnað 1892.
Við óskum Bendan Rodgers góðs gengis í sínum fyrsta leik sem framkvæmdastjóri Liverpool svo og öllum þeim sem á eftir fylgja.

Nýlegar fréttir
-
| Heimir Eyvindarson
Ofurhetja í uppbótartíma -
| Heimir Eyvindarson
Nunez tryggði mikilvægan sigur á Brentford -
| Heimir Eyvindarson
Brentford-Liverpool -
| Sf. Gutt
Áfram með smjörið! -
| Sf. Gutt
Jafnglími! -
| Heimir Eyvindarson
Af hverju er okkur illa við Nottingham Forest? -
| Sf. Gutt
Fyrsta tapið! -
| Sf. Gutt
Darwin í banni -
| Sf. Gutt
Dregið í FA bikarnum -
| Sf. Gutt
Auðvelt áframhald!
Fréttageymslan