| Grétar Magnússon
TIL BAKA
Emre Can verður í treyju númer 23
Emre Can hefur verið úthlutað treyjunúmeri hjá félaginu. Hann verður númer 23 en það er í stór fótspor að feta.
Jamie Carragher var númer 23 hjá félaginu allt þar til hann lagði skóna á hilluna síðastliðið vor. Þess má geta að Robbie Fowler lék í nokkur ár í treyju númer 23. Can valdi númerið sjálfur og sagði að það væri mikill heiður að spila með þetta númer á bakinu.
Emre Can var formlega kynntur sem leikmaður Liverpool á fimmtudaginn var. Hann hafði meðal annars þetta að segja við það tækifæri.
,,Ég er stoltur af því að vera orðinn hluti af þessari fjölskyldu og ég hlakka til að spila hérna. Ég mun gera mitt besta. LFC er frábært félag og stuðningsmennirnir eru meðal þeirra bestu í heimi. Ég hlakka til fyrsta leiks og ég get ekki beðið eftir að stíga út á völlinn í fyrsta sinn á Anfield."
Emre kom, eins og fram hefur komið, frá Bayer Leverkusen. Hermt er að Liverpool hafi borgað 9,8 milljónir sterlingspunda fyrir þennan efnilega miðjumann.
Þeir leikmenn Liverpool sem ekki tóku þátt á HM í Brasilíu mættu allir til æfinga í dag og er Emre Can væntanlega þar á meðal.
Hér eru myndir sem voru teknar þegar Emre gekk formlega til liðs við Liverpool.

Nýlegar fréttir
-
| Heimir Eyvindarson
Ofurhetja í uppbótartíma -
| Heimir Eyvindarson
Nunez tryggði mikilvægan sigur á Brentford -
| Heimir Eyvindarson
Brentford-Liverpool -
| Sf. Gutt
Áfram með smjörið! -
| Sf. Gutt
Jafnglími! -
| Heimir Eyvindarson
Af hverju er okkur illa við Nottingham Forest? -
| Sf. Gutt
Fyrsta tapið! -
| Sf. Gutt
Darwin í banni -
| Sf. Gutt
Dregið í FA bikarnum -
| Sf. Gutt
Auðvelt áframhald!
Fréttageymslan