| Sf. Gutt
Emre Can stóð sig vel í tapleiknum á móti Chelsea um helgina. Hann hefur lítið komið við sögu það sem af er leiktíðar en Brendan Rodgers telur að hann eigi eftir að koma til.
,,Hann er stór og sterkur strákur sem er í raun bara núna að komast aftur í gott form. Hann stóð sig mjög vel í leiknum og sýndi kraft og úthald. Hann getur skotið langskotum og skoraði gott mark."
,,Hann er ungur leikmaður sem er að taka góðum framförum og ég er viss um að hann á eftir að verða mjög góður leikmaður á næstu tveimur árum eða svo. Hann er auðvitað ennþá mjög ungur enda aðeins tvítugur."
Það er eins gott að Emre Can eigi eftir að reynast góður því alltof of margir af þeim ungu leikmönnum sem Liverpool hefur keypt síðustu árin hafa ekki staðið undir væntingum. Emre er ekki búinn að koma mikið við sögu á leiktíðinni enda búinn að vera lengi meiddur en hann á vonandi eftir að láta til sín taka. Hann stóð að minnsta kosti fyrir sínu í Madríd og eins á móti Chelsea.
TIL BAKA
Emre á eftir að koma til

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan