| Heimir Eyvindarson
Jordon Ibe fékk heimsókn á Melwood í gær. Þar var á ferðinni Sunday Oliseh landsliðsþjálfari Nígeríu, sem bauð Ibe að taka sæti í landsliði þjóðarinnar.
Ibe hefur leikið með yngri landsliðum Englands og miðað við þær miklu framfarir sem hann hefur sýnt er ekki nokkur vafi á því að ekki líður á löngu þar til hann verður valinn í A-landsliðið.
Áður en að því kemur að hann fær kallið frá Roy Hodgson er honum hinsvegar frjálst að velja frekar að leika fyrir hönd Nígeríu, sem kemur til af því að faðir Ibe er af nígerísku bergi brotinn.
Nígeríska knattspyrnusambandið hefur lengi vitað af þessum möguleika og mun um nokkurt skeið hafa reynt að sannfæra Ibe um að það væri skynsamlegt fyrir hann að leika með landsliði Nígeríu í framtíðinni, fremur en því enska. Ibe hefur lítið sem ekkert viljað tjá sig um það hingað til og væntanlega eru Nígeríumenn að verða úrkula vonar um að drengurinn söðli um. Líklegt þykir að heimsókn Oliseh á Melwood í gær sé síðasta tilraun Nígeríumanna til að sannfæra Ibe um ágæti nígeríska landsliðsins.
Í frétt The Guardian um málið í gær er fullyrt að enska knattspyrnusambandið sé meðvitað um áhuga Nígeríumanna á Ibe og þar hafi komið til tals að velja drenginn með hraði í A-landsliðið fyrir næsta verkefni. Ekkert skal fullyrt um hvað er hæft í því en hitt er annað mál að miðað við framgöngu Ibe á fótboltavellinum að undanförnu hlýtur hann að fara að fá landsliðssæti hjá Englendingum, burtséð frá öllum ytri þrýstingi. Hæfileikarnir eru nægir, svo mikið er víst.
TIL BAKA
Nígeríumenn biðla til Ibe

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan