| Sf. Gutt

Niðurtalning - 5. kapítuli

Það styttist í stórleikinn og enn skal haldið áfram með fróðleik af ýmsu tagi um Deildarbikarinn fyrr og nú. 

+ Stærsti sigur Liverpool í Deildarbikarnum kom þann 23. september 1986. Liverpool - Fulham. 10:0. Steve McMahon 4, Ian Rush 2, John Wark 2, Ronnie Whelan og Steve Nicol skoruðu mörkin. 


+ Ian Rush hefur oftast allra orðið Deildarbikarmeistari. Hann var í fimm sigurliðum Liverpool. Þeir Kenny Dalglish, Phil Neal, Alan Kennedy og Sammy Lee unnu keppnina fjórum sinnum.

+ Liverpool hefur oftast allra liða unnið Deildarbikarinn eða átta sinnum.

+ Manchester City hefur unnið keppnina þrisvar sinnum. 

+ Liverpool og Manchester City hafa aldrei leikið saman til úrslita í stórkeppni.


+ Liverpool vann keppnina síðast árið 2012 eftir að hafa unnið Cardiff City 3:2 í vítaspyrnukeppni eftir 2:2 jafntefli á Wembley. 


+ Þeir Jordan Henderson, Jose Enrique, Martin Skrtel og Lucas Leiva eru eftir af þeim leikmönnum sem tóku þátt í Deildarbikarnum þá leiktíð. Lucas lék reyndar ekki í úrslitaleiknum vegna meiðsla.

+ Jon Flanagan og Raheem Sterling voru í liðshópi Liverpool á leiktíðinni en léku ekki í Deildarbikarnum.

+ Steven Gerrard tók við Deildarbikarnum á Wembley árið 2012. Áður höfðu Phil Thompson, Graeme Souness, Ian Rush, Robbie Fowler og Sami Hyypia tekið við Deildarbikarnum sem fyrirliðar Liverpool.

Reyndar tók Bob Paisley, framkvæmdastjóri Liverpool, við Deildarbikarnum árið 1983. Hann var þá að stjórna Liverpool á sinni síðustu leiktíð og Greame Souness lét hann fara fyrir liðinu og taka við bikarnum eftir 2:1 sigur á Manchester United.

+ Að öllu forfallalausu verður Jordan Henderson fyrirliði Liverpool á sunnudaginn.


+ Fjórir leikmenn Liverpool hafa verið valdir Menn leiksins eftir Deildarbikarúrslitaleik. Árið 1995 varð Steve McManaman fyrir valinu, Robbie Fowler var valinn árið 2001, Jerzy Dudek hlaut heiðurinn árið 2003 og Stewart Downing 2012. 


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan