| Grétar Magnússon
TIL BAKA
Woodburn hlýtur verðlaun
Ben Woodburn var á mánudagskvöldið valinn besti ungi leikmaður ársins í Wales.
Atkvæðagreiðslan var þannig að almenningur í Wales kaus í valinu og það kemur nú fáum á óvart að Woodburn skyldi vera valinn að þessu sinni. Hann stóð sig gríðarlega vel með landsliðinu í síðasta landsleikjahléi þar sem hann skoraði sigurmarkið í leik gegn Austurríki og nokkrum dögum síðar lagði hann upp mark í 2-0 sigri á Moldavíu.
,,Tilfinningin er frábær," sagði Woodburn þegar hann tók við verðlaununum. ,,Verðlaunin eru stór og það eru margir gríðarlega góðir leikmenn sem hafa unnið þau í gegnum tíðina."
Sama kvöld fékk svo Ian Rush sérstök verðlaun fyrir þjónustu sína við knattspyrnu í Wales í gegnum árin. Hann er enn markahæsti leikmaður í sögu landsins en hann skoraði 28 mörk í 73 leikjum á árunum 1980 til 1996.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan