Steven valinn maður 6. umferðar F.A. bikarsins
Steven Gerrard var valinn Maður sjöttu umferðar F.A. bikarsins í vefkosningu á heimasíðu Enska knattspyrnusambandsins. Eftir hverja umferð er valinn einn leikmaður sem þótt hefur skara framúr. Jamie átti stórleik í liði Evrópumeistaranna gegn Birmingham City þegar þeir unnu metsigur á Birmingham City með 7:0 sigri á St Andrews. Hann átti til dæmis þátt í fimm fyrstu mörkunum sem Liverpool skoraði í leiknum. Steven var tilnefndur ásamt fjórum öðrum leikmönnum. Hann hlaut yfirburðakosningu og fékk 65% af þeim 34.918 atkvæðum sem greidd voru. Stuðningsmenn Liverpool voru hvattir til að kjósa Steven á hinni opinberu heimasíðu Liverpool og það hefur líklega munað um öll þau atkvæði sem skiluðu sér frá þeirri vefsíðu sem er ein fjölsóttasta knattspyrnuvefsíða veraldar!
Fóstbróðir Steven, Jamie Carragher, var valinn besti leikmaður fimmtu umferðar og er þetta í fyrsta sinn sem leikmenn frá sama félagi eru valdir bestu menn tveggja umferða í röð. Steven fær viðurkenningu og frímiða á úrslitaleikinn. Þar verður hann og aðrir þeir sem hafa verið valdir í öðrum umferðum keppninnar kynntir fyrir áhorfednum í leikhléi. Reyndar ætlar Steven sér örugglega að vera kynntur fyrir áhorfendum fyrir leikinn því hann vill sjálfur taka þátt í úrslitaleiknum! Hann fær auk þess 1.000 sterlingspunda vöruúttekt, frá íþróttavörframleiðandanum UMBRO, sem hann á að ráðstafa til einhvers góðs málefnis. Steven var mjög vel að því kominn að vera valinn besti leikmaður þessarar umferðar og vonandi á hann eftir að vera í sigurliði í keppninni sjálfri í vor!
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna