| Sf. Gutt
Þar kom loksins að því. Þessu hafa leikmenn jafnt sem stuðningsmenn Liverpool beðið eftir frá því þessi leiktíð hófst. Á morgun er sem sagt loksins komið að því að Liverpool hefji leik á hefðbundnum leiktíma. Leikmenn Liverpool og Blackburn Rovers ganga til leiks á Anfield Road og leikurinn hefst klukkan þrjú að staðartíma. Ekki seinna vænna því það styttist í fyrsta vetrardag.
Af þeim sjö deildarleikjum sem eru búnir á þessari leiktíð þá hefur Liverpool aldrei hafið leik á hefðbundnum leiktíma. Sex af leikjunum hafa verið leiknir um hádegisbilið og einn að kveldi. Þetta verður að teljast nokkuð furðuleg leikjaniðurröðun þótt fátt komi á óvart á þessum síðustu tímum þegar knattspyrnuheimurinn stjórnast af sjónvarps- og peningahagsmunum. Það er vitað að hádegistíminn er mjög óvinsæll hjá framkvæmdastjórum, leikmönnum og stuðningsmönnum því allir þurfa að fara á fætur töluvert fyrr en ella. Þeir sem gleggst fylgjast með fullyrða að hádegisleikirnir séu oftast daufari en leiki á öðrum tímum. Eins þurfa stuðningsmenn, sem langt eiga að, að taka daginn snemma og í sumum tilfellum mjög snemma.
En nú á laugardaginn geta stuðningsmenn Liverpool tekið gleði sína og haldið til Anfield á hefðbundnum leiktíma. Þetta gleður líka leikmenn liðsins og eins Rafael Benítez sem hefur vrið ófeiminn við að gagnrýna hversu oft Liverpool hefur þurft að leika á þessum óvinsæla leiktíma um hádegisbilið. Sem sagt leikur klukkan þrjú sem er gott. Að sjálfsögðu þarf ekki að taka það fram að leikurinn á morgun hefst klukkan tvö að íslenskum tíma því það er enn sumartími á Bretlandseyjum.
TIL BAKA
Loksins, loksins!

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan