| Ólafur Haukur Tómasson
Eftir umferð gærdagsins í ensku Úrvalsdeildinni þá situr Liverpool enn eitt á toppi deildarinnar. Liðið vann baráttu sigur gegn Portsmouth og kom markið úr vítaspyrnu sem Steven Gerrard tók á 76. mínútu leiksins.
Rafael Benítez gerði nokkrar breytingar á liðinu sem að lagði Chelsea en nokkrir leikmenn liðsins urðu fyrir smá hnjaski í vikunni. Á meðal þeirra leikmanna sem komu í liðið var Lucas Leiva sem byrjaði sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu. Hann nýtti tækifærið vel og átti fínan leik á miðjunni hjá Liverpool við hlið Xabi Alonso.
Þrátt fyrir góða byrjun Liverpool á tímabilinu þá segir Lucas að liðið verði að halda áfram á sömu braut og megi ekkert gefa eftir:
"Við erum ánægðir því við vitum að eftir stórleik gegn liði eins og Chelsea þá geta lið farið að slaka aðeins á en við sýndum mikla þrautseigja með því að halda áfram. Þetta var erfiður leikur af því að Portsmouth komu hingað til þess að verjast og beita skyndisóknum, en við vorum þolinmóðir og unnum vel svo ég tel okkur hafa átt sigurinn skilinn.
Það er gott að vera með þriggja stiga forskot á toppnum en við vitum að við getum ekki hugsað of mikið um sigurinn. Við verðum að halda áfram að leggja svona hart að okkur og við verðum að hugsa um einn leik í senn. Við vitum hversu erfitt það er að vinna deildina, en við munum halda áfram." sagði Lucas við opinbera heimasíðu Liverpool.
Lucas átti eins og áður segir fínan leik á miðjunni en hann telur þennan leik vera þann besta sem hann hefur átt á ferli sínum hjá félaginu:
"Mér finnst ég hafa aðlagast enska boltanum og ég get spilað mun hraðar í leikjum núna. Ég var að koma inn í teiginn og ég hafði nokkuð tækifæri til þess að skora, svo ég er ánægður og ég reyni að bæta mig á hverjum degi." bætti Brasilíumaðurinn hárprúði við.
Svo er spurning hvort að Lucas fái að halda sæti sínu í byrjunarliðinu um helgina þegar liðið sækir Tottenham heim, en hugsanlega mun Javier Mascherano koma aftur inn í liðið enda virðist sem að lið Tottenham sé að komast á skrið eftir arfaslaka byrjun á tímabilinu.
TIL BAKA
Lucas ætlar ekki að gefa eftir

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan