| Sf. Gutt
Liverpool hefur ekki byrjað nógu vel á keppnistímabilinu en Hollendingurinn Dirk Kuyt er hinn rólegasti yfir stöðunni í deildinni.
"Núna skipir ekki máli hvar lið eins og Chelsea, Man United og Arsenal eru í stigatöflunni því við þurfum að hugsa um okkur sjálfa. Það skiptir öllu og ég er viss um að við komust fljótlega að toppnum ef við höldum áfram að vinna okkar leiki. Við skulum sjá hvar við verðum eftir tvo mánuði eða svo."
Liverpool vann síðasta leik fyrir landsleikjahléið þegar liðið lagði Bolton að velli með sigurmarki frá Steven Gerrard. Liverpool lenti tvívegis undir í leiknum en náði samt sigri.
"Við berjumst fyrir hvern annan. Það eru nokkrir leikmenn í liðinu sem eru í heimsklassa og má nefna þá Fernando Torres og Steven Gerrard í því samhengi. Við vitum því að ef við leggjum hart að okkur þá munum við alltaf vera í toppbaráttunni."
Eins og fyrr segir þá skoraði Steven Gerrard sigurmarkið gegn Bolton og hann bætti svo við tveimur landsliðsmörkum núna í vikunni. Dirk hefur mikið álit á fyrirliða sínum.
"Sigurmark Steven gegn Bolton sýndi hvers vegna hann er fyrirliði. Mér finnst hann vera besti miðjumaður í heimi. Ef liðið er í erfiðri aðstöðu þá búumst við alltaf við einhverju frá honum. Hæfileikar hans styrkja liðið mikið og við erum rosalega ánægðir með að hafa hann hérna."
Dirk hefur spilað alla leiki Liverpool á keppnistímabilinu og skorað eitt mark.
TIL BAKA
Dirk rólegur yfir stöðunni

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan