| Sf. Gutt
TIL BAKA
Tveir meiddir
Tveir leikmenn Liverpool meiddust gegn Chelsea og gáfu ekki kost á sér í landslið sín núna í vikunni. Steven Gerrard var slæmur í nára eftir leikinn og Martin Kelly meiddist á ökkla. Martin meiddist í fyrri hálfleik en harkaði af sér, lék allan leikinn og stóð sig með sóma.
Steven átti að vera með enska landsliðinu sem mætir Dönum í Kaupmannahöfn. Martin var valinn í enska undir 21. árs liðið sem leikur gegn Ítalíu. Reiknað er með því að bæði Steven og Martin verði tilbúnir í slaginn um næstu helgi þegar Liverpool mætir Wigan á Anfield Road.
Þó nokkuð af vináttulandsleikjum fer fram núna í kvöld og annað kvöld. Töluvert af leikmönnum Liverpool verður með í þeim.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Áramótakveðjur! -
| Sf. Gutt
Verðum að skrifa okkar eigin sögu! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Jólahugleiðing Arne Slot -
| Sf. Gutt
Gleðileg jól! -
| Sf. Gutt
Af samningamálum Virgil van Dijk -
| Sf. Gutt
Úr leik! -
| Sf. Gutt
Hlýrra uppi í stúku! -
| Sf. Gutt
Dregið í Deildarbikarnum -
| Sf. Gutt
Áfram í Deildarbikarnum
Fréttageymslan