| Grétar Magnússon
Markvörðurinn Adam Bogdan sem verið hefur á láni hjá Wigan í næst efstu deild Englands meiddist alvarlega og er því kominn aftur til Liverpool til að hefja endurhæfingu vegna meiðslanna.
Bogdan var borinn útaf í markalausu jafntefli Wigan gegn Barnsley á laugardaginn var og óttast var strax að meiðslin væru alvarleg. Skönnun leiddi svo í ljós að Bogdan sleit fremra krossband í hné og verður frá í allt að níu mánuði.
Bogdan sagði frá meiðslum sínum á Instagram síðu sinni: ,,Ég var að fá niðurstöður úr röntgenmyndatökunni sem sýndi að ég sleit krossband í hægra hné. Ég mun vera lengi frá en er viss um að ég snúi til baka sterkari en áður."
Bogdan var lánaður til Wigan í sumar þegar ljóst var að staða hans sem varamarkvörður hjá félaginu var ekki lengur í boði og þeir Simon Mignolet og Loris Karius væru ofar í goggunarröðinni. Hann hefur til þessa spilað sex leiki fyrir Liverpool og ljóst er að þeir verða nú ekki mikið fleiri.
Hann spilaði alla leiki Wigan í deildinni til þessa á tímabilinu, 17 talsins en liðið situr í næst neðsta sæti deildarinnar með 15 stig.
TIL BAKA
Adam Bogdan meiddur

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan