| Sf. Gutt
Virgil van Dijk er nýr fyrirliði Liverpool. Hann tók við stöðunni af Jordan Henderson. Virgil segir að hann sé gríðarlega stoltur yfir því að hafa orðið fyrir valinu sem fyrirliði.
,,Tilfinningin er auðvitað einstök. En efst í huga mér er þakklæti. Ég er auðvitað mjög stoltur í dag og það sama gildir um konuna mína, börnin mín og fjölskylduna mína. Tilfinningin er mögnuð og ég get eiginlega ekki lýst henni núna. En ég er gríðarlega stoltur yfir því að hafa orðið fyrir valinu sem fyrirliði."
,,Ég hef verið fyrirliði Hollands. Það hefur verið mikill heiður og ég hef gengt stöðunni með stolti. En ég get bara ekki lýst því á þessum tímapunkti hvernig er að verða orðinn fyrirliði Liverpool Football Club. Ég er mjög stoltur og mun gera llt sem í mínu valdi stendur til að fylla aðra stolti. Eins vonast ég til þess að það verði ánægja með mig sem fyrirliða og að eins verði ánægja með knattspyrnufélagið sjálft."
,,Ég veit auðvitað hvað felst í því að vera fyrirliði. Ég hlakka mikið til þess að leiða Liverpool Football Club sem fyrirliði. Vonandi verður liðið sigursælt á minni vakt."

Virgil van Dijk hefur nokkrum sinnum leitt Liverpool sem fyrirliði síðustu leiktíðir þegar Jordan Henderson og James Milner hefur ekki notið við. Nú er hann kominn með fyrirliðabandið. Vonandi vegnar honum sem best í því ábyrgðarmikla hlutverki!
TIL BAKA
Virgil hlakkar mikið til að leiða Liverpool!

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan