| Mummi

Miðasala á Liverpool – Brighton og Liverpool – Leicester

Liverpoolklúbburinn á Íslandi fékk til sölu miða á leik Liverpool – Brighton and Hove Albion sem er áætlað að fari fram 02. nóvember 2024 og á leik Liverpool – Leicester City sem er áætlað að fari fram 26. desember 2024 en opnað verður fyrir söluna á báða þessa leiki þriðjudaginn 10.09.2024 kl. 13:00.

ATH.
Sala fer eingöngu fram í gegnum Sportabler og í stað þess að fyrstur kemur fyrstur fær þá skrá allirsig á biðlista og þegar þeirri skráningu er lokið kl. 13:00, þann 16.09.2024 munum við taka öll nöfnin og draga úr þeim eins og lottói. Við vonum að þetta verði til þess að allir sitji við sama borð.Dregið verður í beinni útsendingu á mánudaginn 16.09.2024 kl. 19:00 á Facebook síðu klúbbsins Liverpoolklúbburinn á Íslandi og á instagramsíðu klúbbsins #lfcice.

Hægt verður að skrá sig á biðlista fyrir miðum til mánudagsins 16.09.2024 til kl. 13:00. Verð fyrir hvern miða er aðeins 15.000 krónur. Einungis skráðir félagar sem hafa greitt árgjaldið eiga möguleika að kaupa miða. Til að kaupa miða þarf að fara inná sportabler.com eða Sportabler appið og fara inná svæðið sitt hjá Liverpoolklúbbnum og kaupa miðana þar í gegnum markaðstorgið.

Í boði er að kaupa 2 miða á mann.

Við getum ekki ábyrgst að miðarnir séu hlið við hlið en við reynum eftir fremsta megni að raða því þannig niður en því miður fáum við ekki alltaf úthlutað öllum miðum saman. Í flestum tilfellum fær fólk miða saman. Allar nánari upplýsingar eru veittar í gegnum netfangið [email protected]

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan