| Sf. Gutt
Kenny Dalglish stjórnar Liverpool í fyrsta sinn í Musterinu eftir endurkomu sína í dag þegar Liverpool tekur á móti Everton. Hann er búinn að velja þá sem verja heiður Liverpool í þessum mikilvæga grannaslag og það verður að segjast að val hans kemur að einu mjög á óvart.
Kenny hefur ákvaðið að skella ungliðanum Jay Spearing í byrjunarliðið en varla hefur nokkur maður átt von á því. Jay lék sinn fyrsta leik núna í vikunni eftir að hafa verið nokkrar vikur frá vegna meiðsla þegar varalið Liverpool vann Sunderland 2:1 í æfingaleik. Hann er því ekki í leikæfingu auk þess að vera óreyndur.
Annar ungliði, Martin Kelly, heldur stöðu sinni sem hægri bakvörður og er það vel. Hann er búinn að standa sig mjög vel í þeirri stöðu í síðustu leikjum.
Þetta er liðið í heild sinni: Reina, Kelly, Johnson, Skrtel, Agger, Meireles, Leiva, Spearing, Rodriguez, Kuyt og Torres. Varamenn eru þeir Gulacsi, Kyrgiakos, Cole, Aurelio, Shelvey, Pacheco og Babel.
Þeir Milan Jovanovic og David Ngog eru ekki leikfærir en þeir voru í liðshópnum gen Blackpool á miðvikudaginn. Joe Cole er á hinn bóginn tilbúinn í slaginn. Daniel Pacheco lék mjög vel með varaliðinu í fyrrnefndum leik og fær sæti á bekknum.
TIL BAKA
Kenny búinn að velja

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan