| Grétar Magnússon
TIL BAKA
Fánadagur á Akureyri á sunnudaginn
Í tengslum við leik Everton og Liverpool, sem fram fer á Goodison Park, verður fánadagur Liverpoolklúbbsins á Íslandi haldinn hátíðlegur á heimavelli klúbbsins á Akureyri, SportVitanum sem staðsettur er við Strandgötuna. Mikið og margt verður að gerast á fánadeginum og glæsileg verðlaun verða í boði. Meðal þess sem við ætlum að taka okkur fyrir hendur er:
- Getraun
- Best skreytti einstaklingurinn
- Best skreytta barnið
- Best skreytta borðið

Nú er um að gera að dressa sig upp og mæta á svæðið í sínu fínasta Liverpool pússi, mæta tímanlega og taka þátt í að mynda frábæra stemmningu.
Að sjálfsögðu verða sérkjör klúbbsins í boði á svæðinu, hvort sem um ræðir mat eða drykk. Dagskráin sem slík hefst klukkan 12:30 en leikurinn sjálfur hefst klukkutíma síðar. Húsið sjálft mun opna kl. 11:30.
Vert er að benda fólki á að vetrartími tekur gildi í Bretlandi aðfaranótt sunnudagsins 28. október og því hefst leikurinn á sama tíma hér heima og úti.
Stjórn Liverpoolklúbbsins verður á staðnum og hafa menn og konur því tækifæri á því að heilsa uppá stjórnarmeðlimi.
Hér má sjá Facebook síðu stuðningsmanna félagsins á Akureyri og hér má finna Facebook síðu SportVitans.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan