| Sf. Gutt
Jose Reina missti af leik Liverpool og Tottenham Hotspur um síðustu helgi og það er ekki víst að hann nái leiknum um helgina. Liverpool mætir þá Southampton á útivelli.
Jose gat ekki leikið gegn Tottenham vegna meiðsla á ökkla og óvíst er um nógu góðan bata þannig að hann verði leikfær. Úr herbúðum Liverpool fregnast að beðið verði fram á síðustu stundu með að ákveða hver stendur í markinu á laugardaginn. Fari svo að Jose verði ekki leikfær verður Brad Jones auðvitað settur á vaktina. Hann fékk á sig tvö mörk á móti Tottenham en stóð sig samt vel í heildina séð. Ástralanum er að minnsta kosti vel treystandi þurfi hann að spila.
Aldrei þessu vant þá hefur Jose Reina misst af nokkrum leikjum á þessari sparktíð vegna meiðsla en slíkt hefur verið sjaldgæft frá því hann kom til Liverpool.
TIL BAKA
Jose Reina tæpur

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan