| Sf. Gutt
Þeir Mario Balotello og Glen Johnson eru báðir meiddir og verða ekki til taks þegar Liverpool mætir Bournemouth í Deildarbikarnum á morgun.
Glen fór meiddur af velli á móti Manchester United um helgina. Búist er við því að hann verði frá leik í allt að mánuð.
Mario kom á hinn bóginn inn á sem varamaður eftir að hafa verið meiddur síðustu vikurnar. Nú má velta því fyrir sér hvort Mario hafi verið sendur of snemma til leiks en það kom nokkuð á óvart að hann skyldi vera í liðshópnum fyrir leikinn í Manchester. Báðir eru þeir Mario og Glen meiddir á nára.
Eftir því sem Brendan Rodgers sagði á blaðamannafundi í dag þá eru aðrir leikmenn Liverpool leikfærir. Undanskilinn er þó Jon Flanagan en hann hefur verið meiddur frá því í sumar.
TIL BAKA
Mario og Glen meiddir

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan