| Sf. Gutt

Meiðslafréttir

Hér eru nýjustu fréttir af meiðslastöðunni hjá Liverpool. Fjórir verða ekki leikfærir fyrr en eftir nokkrar vikur. Þeir eru þó á batavegi. 

Alisson Becker verður frá næstu vikur. Hann er á batavegi en sem stendur er óvíst hvenær hann verður leikfær. Hugsanlega seint í næsta mánuði. Alisson tognaði aftan í læri á móti Crystal Palace í byrjun mánaðarins. 

Diogo Jota er frá vegna þess að hann brákaðist á síðu gegn Chelsea. Hann getur trúlega ekki spilað aftur fyrr en seinni partinn í nóvember. 

Harvey Elliott ætti að vera kominn af stað í lok næsta mánaðar. Bein í fæti brotnaði í september og hann hefur verið frá síðan.  

Federico Chiesa er búinn að vera á meiðslalistanum síðustu vikur. Það hefur gengið hægt hjá Ítalanum að ná sér af vöðvameiðslum. Óljóst er hvenær hann verður leikfær á nýjan leik. 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan