| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Fabio Aurelio meiddur
Fabio Aurelio meiddist á hné þegar hann var að leika sér í fótbolta með börnum sínum og verður jafnvel frá keppni í nokkra mánuði.

Það er Daily Express sem segir frá þessum skakkaföllum Aurelios í dag. Samkvæmt heimildarmönnum blaðsins var Aurelio að leik með börnum sínum, syninum Fabio yngri og dótturinni Viktoríu, þegar hann sneri sig svo illa að gömul hnémeiðsl tóku sig upp að nýju.
Allt útlit er fyrir að Aurelio þurfi að fara í aðgerð og missi því bæði af undirbúningstímabilinu og fyrstu leikjunum í Úrvalsdeildinni.
Þetta gæti þýtt að Andrea Dossena sé ekki á förum frá Liverpool í sumar, því fyrir utan hann og Aurelio er hinn ungi Emilio Insua eini vinstri bakvörðurinn í aðalliðinu. Sem stendur a.m.k.
Aurelio á eitt ár eftir af samningi sínum hjá Liverpool.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan