| Sf. Gutt
Fernando Torres meiddist á ökkla í tapleiknum gegn Stoke á laugardaginn. Hann er samt í spænska landsliðhópnum sem er að undirbúa sig fyrir vináttuleik gegn Portúgal á miðvikudagskvöldið.
Hermt var á Liverpoolfc.tv að læknalið spænska landsliðsins myndi meta hvort Fernando væri leikfær þegar kæmi að landsleiknum. Nokkuð undarlegt verður að teljast að forráðmenn Liverpool hafi ekki einfaldlega tilkynnt forföll fyrir Fernando fyrir þennan þýðingarlitla vináttulandsleik.
Roy Hodgson sagði, eftir leikinn við Stoke, að Fernando hefði meiðst á ökkla. Þjálfarar Liverpool vildu taka hann af velli en Fernando harkaði af sér og vildi ljúka leiknum sem hann og gerði.
Það er vonandi að Fernando Torres verði til í slaginn þegar Liverpool leikur sinn næsta leik en liðið mætir West Ham United á laugardaginn kemur.
TIL BAKA
Fernando tæpur vegna meiðsla

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Næsta víst! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Heimir Eyvindarson
Hvað sem hver segir -
| Sf. Gutt
Fyrsta deildartapið frá í haust! -
| Sf. Gutt
Gríðarlega mikilvægur sigur! -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Hundraðasti sigur Liverpool á Everton! -
| Sf. Gutt
Í síðasta sinn í gegnum Stanley garðinn! -
| Heimir Eyvindarson
Hvernig leggst hvíldin í okkar menn
Fréttageymslan