| Sf. Gutt
TIL BAKA
Prófraun framundan
Liverpool leikur sinn síðasta heimaleik núna í dag þegar Tottenham Hotspur kemur í heimsókn á Anfield Road. Kenny Dalglish segir leikinn verða erfiða prófraun fyrir liðið sitt.
,,Við vitum að leikurinn við Spurs verður mikil prófraun. Þeir hafa liðið fyrir velgengni sína á árinu. Liðið hefur spilað marga leiki og verið að berjast á of mörgum vígstöðvum. Þetta hefur verið óheppilegt fyrir liðið en segir samt sína sögu um velgengi þess og hversu langt það hefur komist."
,,Þetta verður því erfiður leikur. En leikurinn hefði verið erfiður fyrir okkur hvort sem hann var sá næst síðasti eða næst fyrsti. Strákarnir okkur verða þó ekki dæmdir af því hvað gerist á sunnudaginn. Þeir ættu að vera metnir af því sem hefur gerst frá því í janúar og þeir hafa verið þessu knattspyrnufélagi til mikils sóma frá því þá."
Nú er að sjá hvort Liverpool nær að tryggja sér fimmta sætið í deildinni með því að leggja Tottenham að velli í dag. Sigur tryggir fimmta sætið en Tottenham getur auðvitað sett strik í þann reikning.
Eitt er þó víst! Gríðarleg stemmning verður í Musterinu í dag því, eins og fyrr segir, þá er þetta síðasti heimaleikur Liverpool á þessari sparktíð. Eins og hefð er fyrir kveðjast leikmenn og stuðningsmenn Liverpool eftir leik og Kóngurinn verður hylltur!

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Hlýrra uppi í stúku! -
| Sf. Gutt
Dregið í Deildarbikarnum -
| Sf. Gutt
Áfram í Deildarbikarnum -
| Mummi
Miðasala á Liverpool – Ipswich og Liverpool – West Ham -
| Mummi
Seinkun á jólagjöf -
| Sf. Gutt
Af samningamálum Trent Alexander-Arnold -
| Sf. Gutt
Jafntefli manni færri! -
| Sf. Gutt
Enn nær Mohamed Salah merkum áfanga! -
| Sf. Gutt
Sögulegur sigur! -
| Sf. Gutt
Sigur á Spáni
Fréttageymslan