| Sf. Gutt
TIL BAKA
Alberto á förum til Ítalíu
Allt bendir til þess að Alberto Aquilani muni mjög fljótlega yfirgefa Liverpool. Brendan Rodgers hyggst ekki nota Ítalann og hann er nú að leita sér að liði á Ítalíu. Á vefsíðu BBC er greint frá því að Liverpool hafi samþykkt tilboð frá Fiorentina í Alberto en ekkert hefur verið staðfest í þeim efnum.
Alberto spilaði ekki með Liverpool gegn Tottenham í Baltemore og fór þess í stað til Ítalíu til að vinna í sínum málum. Þar lék hann sem lánsmaður með AC Milan á síðustu leiktíð og Juventus leiktíðina á undan.
Rafael Benítez keypti Alberto frá Roma sumarið 2009 en hann náði sér aldrei á strik undir stjórn Rafa. Hvorki Roy Hodgson eða Kenny Dalglish höfðu álit á Alberto og lánuðu hann. Brendan Rodgers hefur greinilega heldur ekki álit á honum og nú er vonandi að koma að því að hann losni frá Liverpool allra vegna. Ítalinn á enn tvö ár eftir af samningi sínum við Liverpool.

Nýlegar fréttir
-
| Heimir Eyvindarson
Ofurhetja í uppbótartíma -
| Heimir Eyvindarson
Nunez tryggði mikilvægan sigur á Brentford -
| Heimir Eyvindarson
Brentford-Liverpool -
| Sf. Gutt
Áfram með smjörið! -
| Sf. Gutt
Jafnglími! -
| Heimir Eyvindarson
Af hverju er okkur illa við Nottingham Forest? -
| Sf. Gutt
Fyrsta tapið! -
| Sf. Gutt
Darwin í banni -
| Sf. Gutt
Dregið í FA bikarnum -
| Sf. Gutt
Auðvelt áframhald!
Fréttageymslan