| Heimir Eyvindarson
Jordan Henderson segir að ef Liverpool nái góðum úrslitum og góðri frammistöðu í toppslagnum gegn Arsenal um næstu helgi muni liðið senda út skýr skilaboð til keppinauta sinna.
Liverpool ferðast til höfuðborgarinnar á laugardaginn og mætir toppliði Arsenal á Emirates seinnipart dags. Jordan Henderson segir að ef liðið standi sig vel í þeim leik þá ætti öllum að vera ljóst að Liverpool er ekkert að grínast með að vera í toppbaráttunni!
Arsenal er eina lið deildarinnar sem hefur unnið fleiri leiki en Liverpool á leiktíðinni. Liðið trónir á toppnum eftir 9 umferðir og virkar firnasterkt. það er því ljóst að Liverpool þarf að sýna allar sínar bestu hliðar á laugardaginn til að ná einhverju út úr leiknum. Jordan Henderson er í það minnsta staðráðinn í að gera sitt besta.
,,Við erum í góðu formi og sjálfstraustið í liðinu er mjög gott", segir Henderson í viðtali við Liverpoolfc.com
,,Við höfum byrjað vel og erum á réttri leið. Við erum alltaf að reyna að bæta okkar leik. Vonandi tekst okkur að sýna hvað í okkur býr á Emirates."
,,Allir leikir í Úrvalsdeild eru erfiðir. Andstæðingurinn á laugardag er auðvitað firnasterkur, það verður ekki létt verk að mæta toppliðinu á útivelli en við ætlum að gera okkar besta. Þetta verður örugglega skemmtilegur leikur. Ef okkur tekst vel upp þá eru það skýr skilaboð til keppinauta okkar um að það beri að taka okkur alvarlega í toppbaráttunni."
Liverpool spilaði einn sinn besta leik á tímabilinu um síðustu helgi þegar liði vann WBA örugglega 4-1 á Anfield. Henderson segir að liðið geti samt enn bætt sig.
,,Við spiluðum vel á laugardaginn. Við getum ennþá bætt okkur á ýmsum sviðum og við erum stöðugt að vinna á því. Sóknin hefur verið góð, en ef við ætlum að ná stigi gegn Arsenal verðum við að standa þétt saman í vörninni. Vonandi tekst okkur það."
TIL BAKA
Skýr skilaboð til annarra liða

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan