| Heimir Eyvindarson
Dagurinn í gær var mikill gleðidagur hjá fyrirliðanum. Liverpool gjörsigraði erkifjendurna í Manchester United 3-0 og Gerrard skoraði sjálfur tvö markanna. Enginn leikmaður aðkomuliða hefur skorað jafn mörg mörk á Old Trafford og Captain Fantastic, sem hefði reyndar hæglega getað bætt einu marki við þegar hann misnotaði þriðju vítaspyrnuna sem Liverpool fékk í leiknum.
„Ég er stoltur yfir öllu því sem ég hef afrekað og allir svona áfangar eru ánægjulegir, en ég hugsa samt alltaf fyrst og fremst um liðið. Það er minn stærsti draumur að vinna deildina með Liverpool. Það er ekki útilokað að við náum því í vor, við sýndum það allavega í leiknum í gær að við erum með í titilbaráttunni."
„Það er mikilvægt fyrir okkur að vera með fæturna á jörðinni og anda rólega. Það er mikið eftir af leikjum og margt sem getur gerst, en ef við spilum alla leiki af jafn miklum krafti og í gær þá getur allt gerst."
„Það var mikið rætt um það fyrir leikinn hvort Liverpool gæti talist alvöru keppinautur um titilinn og hvort liðið væri nægilega gott til þess að koma á erfiðan útivöll og taka þrjú stig. Ég fæ ekki betur séð en að við höfum svarað þessum spurningum ágætlega. Við áttum leikinn frá fyrstu mínútu og sigruðum sannfærandi. Eina svekkelsið er að hafa ekki náð að skora fleiri mörk. Við hefðum hæglega getað skorað fimm, sex mörk í leiknum."
Eins og áður segir misnotaði Steven Gerrard eina af þremur vítaspyrnum sem Liverpool fékk í leiknum. Ef hann hefði skorað úr þriðju spyrnunni hefði hann leikið eftir afrek Jan Mølby frá árinu 1996, en þá skoraði Daninn þrennu af vítapunktinum í leik Liverpool og Coventry í deildabikarnum. Steven Gerrard var meðal áhorfenda á leiknum.
„Liverpool og Coventry var fyrsti leikurinn sem ég fór á. Pabbi tók mig með sér og það var rosaleg upplifun. Leikurinn endaði 3-1. Ég gleymi aldrei þrennunni hjá Mølby. Jan var betri vítaskytta en ég. Því miður tókst mér ekki að leika eftir afrek hans, en sem betur fer skoraði ég þó úr tveimur mikilvægustu vítunum."
TIL BAKA
Steven náði í skottið á Ian Rush

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan