| Heimir Eyvindarson
Frægi stuðningsmaðurinn sem spáir í spilin með okkur hér á síðunni er ekki af verri endanum þessa vikuna. Það er engin önnur en Katrín Ómarsdóttir leikmaður Liverpool.
Hvenær byrjaðir þú að halda með Liverpool?
Ég hef verið svona 5-6 ára. Eldri bróðir minn hélt með Liverpool og svo leist mér ansi vel á Stan Collymore. Ég hef haldið með liðinu síðan.
Hver er þinn uppáhalds Liverpool leikmaður allra tíma?
Michael Owen var í miklu uppáhaldi þegar ég var yngri. Algjör unun líka að horfa á Suarez spila, en það er erfitt að horfa framhjá Gerrard. Ætli ég verði ekki að segja Gerrard. En ég vildi að ég hefði verið uppi þegar Kenny Dalglish og þeir voru að spila.
Hver er í mestu uppáhaldi af núverandi leikmönnum liðsins?
Fyrir utan Gerrard líst mér vel á Emre Can. Langar að sjá meira af honum, en ég held að hann verði bara betri með aldrinum. Svo væri gaman að sjá Coutinho spila meira. Svo gaman að horfa á hann með boltann.
Ef þú mættir kaupa einn leikmann að eigin vali til Liverpool, hver yrði fyrir valinu?
Iniesta kemur fyrst upp í hugann. Eða Fabregas.
Hvernig fer leikurinn gegn Newcastle um helgina?
Newcastle menn mæta fullir sjálfstraust eftir sigurinn gegn City. Þeir virðast vera að pikka sig upp eftir slæma byrjun. Erfiður völlur fyrir Liverpool að fara á, en ég verð að treysta á mína menn. 1-2. Balotelli skorar.
Í hvaða sæti endar Liverpool í vor?
4. sæti.
Sem leikmaður Liverpool hefurðu væntanlega hitt leikmenn karlaliðsins nokkrum sinnum. Hver er skemmtilegastur í þeim ágæta hópi?
Við höfum hitt hópinn nokkrum sinnum og þeir eru fínir. Þeir sem hafa verið hressastir eru yfirleitt Kolo og Sturridge. Kolo er bara hress!
TIL BAKA
Fræg fyrir leik

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan