| Grétar Magnússon
TIL BAKA
Besti ungi leikmaður deildarinnar
Það kemur fáum á óvart að Trent Alexander-Arnold hefur verið útnefndur sem besti ungi leikmaður úrvalsdeilarinnar fyrir tímabilið 2019-20.
Hann tók þátt í öllum 38 deildarleikjum liðsins á tímabilinu, skoraði fjögur mörk og lagði upp 13 fyrir liðsfélaga sína. Bætti hann þar með stoðsendinga met varnarmanns sem hann átti sjálfur frá tímabilinu á undan.
Alls voru átta leikmenn tilnefndir ásamt Trent en það voru þeir Jack Grealish (Aston Villa), Mason Greenwood, Anthony Martial og Marcus Rashford (Manchester United), Christian Pulisic og Mason Mount (Chelsea) og Dean Henderson (Sheffield United).
Þetta val fer fram á vegum Úrvalsdeildarinnar. Trent er fyrsti leikmaður Liverpool til að hljóta þessi verðlaun.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Dregið í Deildarbikarnum -
| Mummi
Miðasala á Liverpool – Ipswich og Liverpool – West Ham -
| Sf. Gutt
Áfram í Deildarbikarnum -
| Mummi
Seinkun á jólagjöf -
| Sf. Gutt
Af samningamálum Trent Alexander-Arnold -
| Sf. Gutt
Jafntefli manni færri! -
| Sf. Gutt
Enn nær Mohamed Salah merkum áfanga! -
| Sf. Gutt
Sögulegur sigur! -
| Sf. Gutt
Sigur á Spáni -
| Sf. Gutt
Af samningamálum Mohamed Salah
Fréttageymslan