| Sf. Gutt

Mohamed Salah braut blað í sögu Liverpool Football Club í Madríd í kvöld. Hann skoraði þá í níunda leik sínum í röð í öllum keppnum. Enginn leikmaður í sögu Liverpool hefur áður skorað í svo mörgum leikjum í röð. Mohamed er búinn að skora gegn Chelsea, Leeds United, AC Milan, Crystal Palace, Brentford, Porto, Manchester City, Watford og í kvöld á móti Atletico Madrid. Liverpool mætti líka Norwich City i Deildarbikarnum, á þessum tíma, en Mohamed tók ekki þátt í þeim leik.

Reyndar setti Mohamed annað félagsmet í leiðinni í kvöld. Með mörkunum tveimur er Egyptinn búinn að skora að skora 31 mark í Evrópukeppni þeirra bestu. Steven Gerrard átti gamla metið sem var 30 mörk. Steven er markahæsti leikmaður Liverpool í Evrópukeppnum með 41 mark.
TIL BAKA
Mohamed Salah brýtur blað

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Næsta víst! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Heimir Eyvindarson
Hvað sem hver segir -
| Sf. Gutt
Fyrsta deildartapið frá í haust! -
| Sf. Gutt
Gríðarlega mikilvægur sigur! -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Hundraðasti sigur Liverpool á Everton! -
| Sf. Gutt
Í síðasta sinn í gegnum Stanley garðinn! -
| Heimir Eyvindarson
Hvernig leggst hvíldin í okkar menn
Fréttageymslan