| Grétar Magnússon
TIL BAKA
Rhys Williams lánaður
Miðvörðurinn Rhys Williams mun leika með Blackpool í næst efstu deild Englands á komandi tímabili.
Williams átti sinn þátt í því að Liverpool tryggði sér þriðja sætið í deildinni tímabilið 2020-21 og var hann byrjunarliðsmaður í síðustu fimm deildarleikjum liðsins þegar mikilvæg stig voru sótt.
Hann hefur leikið með yngri liðum félagsins allt frá U-10 ára liðinu og hefur til þessa spilað 19 leiki fyrir aðalliðið. Síðasta sumar skrifaði hann undir langtíma samning við félagið og snýr hann vonandi til baka næsta sumar sem enn sterkari leikmaður. Á síðasta tímabili var hann á láni hjá Swansea og fékk því miður ekki nógu margar mínútur þar.
Blackpool hefja leik í Championship deildinni 30. júlí næstkomandi þegar þeir taka á móti Reading í fyrsta leik deildarinnar.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Alisson farinn að æfa -
| Sf. Gutt
Landsleikjafréttir -
| Sf. Gutt
Harvey farinn að æfa -
| Sf. Gutt
Ungliðar lánaðir -
| Sf. Gutt
Virgil fékk frí -
| Sf. Gutt
Landsleikjafréttir -
| Sf. Gutt
Georginio Wijnaldum fer víða -
| Sf. Gutt
Tveir uppaldir í enska landsliðinu -
| Sf. Gutt
Trent meiddur -
| Sf. Gutt
Heilsteypt lið!
Fréttageymslan