| Sf. Gutt
Á dögunum spurðist út að lánsmaðurinn Arthur Melo hefði meiðst og verði úr leik næstu mánuðina. Hermt er að hann verði frá leik og keppni næstu þrjá til fjóra mánuði. Ef rétt er skilið er um einhverskonar vöðvameiðsli að ræða og eins og gefur að skilja eru þau alvarleg.
Arthur kom að láni frá Juventus rétt áður en lokað var fyrir félagaskipti. Hann var búinn að taka þátt í einum leik með aðalliði Liverpool þegar kom að landsleikjahléi. Í hléinu æfði hann á fullu til að koma sér í betra stand en hann hafði verið í þegar hann kom til Liverpool. Það var því mjög dapurlegt að svona skyldi fara því hann var búinn að leggja mjög hart að sér.
Nú er að sjá hvernig Brasilíumanninum gengur að ná sér. Ljóst er að komið verður fram á nýtt ár þegar hann verður orðinn góður af meiðslum sínum.
TIL BAKA
Arthur Melo úr leik

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Næsta víst! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Heimir Eyvindarson
Hvað sem hver segir -
| Sf. Gutt
Fyrsta deildartapið frá í haust! -
| Sf. Gutt
Gríðarlega mikilvægur sigur! -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Hundraðasti sigur Liverpool á Everton! -
| Sf. Gutt
Í síðasta sinn í gegnum Stanley garðinn! -
| Heimir Eyvindarson
Hvernig leggst hvíldin í okkar menn
Fréttageymslan